Hildur besta vinkona mín á afmæli í dag. Ég óska henni innilega til hamingju með daginn og vona að hún njóti dagsins vel. Congratz girlie!

Posted at 02:21 by Vanessita
Permalink
Kannski ekki alveg, en ég set hérna nokkrar af stofunni okkar. Ég er m.a.s. komin með samviskubit; mundi allt í einu að þið hafið ekki einu sinni séð myndir af nýju íbúðinni okkar. En cosy, er það ekki?



Posted at 14:07 by Vanessita
Permalink
Það er svo langt síðan nýjar myndir voru birtar hér síðast að ég held að þörf sé á að nefna sérstaklega að nú eru komnar í loftið myndir frá ferð okkar til Portúgal í júní. Þær eru ekki mjög margar, aðallega vegna þess að a) myndavélin bilar stundum og við nenntum ekki að standa í leiðindunum sem fylgja því að eiga fullt af ónýtum myndum sem annars hefðu verið góðar og b) það gerðist ekkert mjög margt; allavega ekki mörg "Kodak-augnablik".
Posted at 17:40 by Pálmi Þór Þorbergsson
Ég hef verið með eindæmum latur við skriftir undanfarið. Veit ekki alveg hvers vegna, en sennilega vegna þess að ég hef ekki haft frá neinu sérstöku að segja. Mér hefur fundist það allavega. Ég veit ekki einu sinni hvað ég á að láta þessa færslu heita. Hvað finnst ykkur? Endilega kommentið.
Ég er annars byrjaður að vinna aftur. Ég fékk sömu vinnu og í fyrra fyrir þá sem ekki vita það. Ég vinn á næturna við það að sinna sænskum gamlingjum, horfa á sjónvarpið og lesa. Ekki amalegt það.
Hmm. Hvað skal segja næst? Kommentið endilega um það líka.
Getur verið að lífið sé bara ekki nógu spennandi þessa dagana til að þörf sé á að deila því með heimsbyggðinni? Getur verið að ég sé svo djúpt sokkinn í þanka mína að ég taki ekki eftir smáatriðunum sem eru þess virði að um þau sé skrifað á bloggsíðum veraldar? Þá á ég við smáatriði sem yfirleitt er sagt frá í eftirfarandi stíl:
"Hvað er málið með ... ? Ég fór í gær til ... og sá ... . Þá rakst ég á ... sem sagði mér að ... hefði ... í ... sinn. Þá fór ég að velta fyrir mér hvort ... gæti virkilega verið svona ... . Er í alvörunni svona mikið mál að ... í ... sinn? Fyrst ... gat það ættu allir að geta það! Magnað. En þá dettur mér annað í hug; ég ætti kannski að fara að drífa mig með ... í ... . Alveg orðið tímabært. ... hérna er að drepa mig."
Ég hef því miður ekki farið víða undanfarið (nema til Portúgal og þar gerðist ekki margt sem í frásögur var færandi) og hvað þá séð ... ... í ... sinn.
Posted at 17:27 by Pálmi Þór Þorbergsson
Ég er jú að fara í bað og ég er á túr; ég er samt ekki að tala um svoleiðis blóðbað. Það var hrikalegt að heyra fréttirnar frá London í dag. Stelpa sem er að vinna með mér hljóp inn í eldhúsið í dag og sagði okkur hvað hefði gerst. Eftir smá stund hljóp hún inn aftur og sagði okkur að tala látinna hefði breyst úr 2 í 6. Enn og aftur hljóp hún inn eftir dálitla stund og sagði okkur að maður hefði verið skotinn í hausinn í miðborg Malmö. Hvað er að gerast í heiminum? Pálmi er nú alltaf hálf smeykur við að fara til Malmö enda mikið um ofbeldi og glæpi þar en ég hlæ bara að honum. Kannski ætti maður að íhuga þessar áhyggjur hans til tilbreytingar.
Posted at 01:25 by Vanessita
Permalink
The True You |
| You want your girlfriend or boyfriend to be together with you always, no matter when or where. |
| With respect to money, you are a bit stingy. |
| You think good luck doesn't exist - reality is built on practicalities. |
| The hidden side of your personality tends to be satisfied to care for things with a minimal amount of effort. |
| You are tend to think about others' feelings a lot, perhaps because you are so eager to be liked. |
| When it comes to finding a romantic partner, you will search and search until you find your perfect match. |
Nr. 1 - Já, pínu satt.
Nr. 2 - Bullshit! Generous is my middle name. Ég er m.a.s. þekkt fyrir að vera of gjafmild.
Nr. 3 - Ennþá meira bull. Í flestum tilfellum trúi ég t.d. ekki á tilviljanir. Things happen for a reason.
Nr. 4 - Hlusta ekki á ´etta sko!
Nr. 5 - True!
Nr. 6 - Fyrirgefðu ... og hver gerir það ekki???
Þetta er s.s. ekki rassgat the real me.
P.s.- Takk samt, Arndís!
P.p.s.- Úúúú ... blogg 4 dagar í röð; hvað er í gangeeeee?
P.p.p.s. - Ný könnun.
Posted at 02:04 by Vanessita
Permalink
Ég hata símasölufólk. Í dag hringdi einn dúddi og bauð mér að skipta um símafyrirtæki. Ég er svo endalaust þreytt á þessu. Þegar ég sagði að ég hefði engan áhuga þá spyr hann strax:
- En hefurðu ekki áhuga á að spara pening?
- Nei, eiginlega ekki. Ég á nóg af peningum.
Hann varð allur asnalegur, kvaddi og lagði á.
Ég er samt búin að ákveða hvað ég ætla að segja næst þegar þeir hringja; satt að segja þá hlakka ég bara til að þeir hringi því mér finnst þetta svo gott hjá mér. Ég segi bara að ég eigi engan heimasíma (þótt þeir hringi alltaf heim til manns) og þykist bara ekki skilja neitt í þessu. Svolítið forvitin að vita hvað þeir eiga eftir að svara.
Að lokum læt ég fylgja með nokkrar línur úr bók sem ég er búin að vera að lesa út í garði í dag.
And there she is, in the kitchen doorway, looking wonderful, and Eddie feels that familiar tickle in his chest. She brushes a bit of rainwater from her hair and smiles. She has a small box in her hands.
"I brought you something. For your birthday, and, well ... for your leaving, too."
She smiles again. Eddie wants to hug her so badly, he thinks he´ll burst. He doesn´t care what is in the box. He only wants to remember her holding it out for him. As always, with Marguerite, Eddie mostly wants to freeze time.
Posted at 14:38 by Vanessita
Permalink
Svakalegur hiti ... öss öss öss
Þessi hiti er alveg að fara með mig í dag. Ekki beint draumajobbið að vinna við uppvask þegar veðrið er svona en samt verð ég að gera það. Var að vinna frá 11:30 til 15:45 í dag, hvorki meira né minna en 175 gestir, takk fyrir. Rosalega er ég fegin að vera í fríi í kvöld. Núna virkar það þannig að það skiptist á að ég er að vinna kvöld og í hádeginu; það gengur ekki að vinna allan daginn þegar er svona heitt.
Í kvöld bryjar Pálmi sumarvinnuna sína. Hann verður bara að vinna næturvaktir í sumar svo að við eigum ekki eftir að hittast neitt alltof mikið. Það er slæmt en ekki gleyma að vinna á næturna = muchos dineros og það er einmitt það sem unga fólkið vill í dag.
Áður en ég gleymi þá ætla ég að óska henni frænku minni sem býr í Portúgal innilega til hamingju með afmælið. Hún verður 45 ára í dag kellingin.
Ég verð með næturgesti í kvöld. Það er verið að gera við ganginn hennar Emmu svo hún og Lars ætla að fá að gista hjá okkur í nótt á meðan þeir leggja gólfið.
Das ist allt í bili. Bið að heilsa ykkur í bili. Ble ble!
Posted at 17:22 by Vanessita
Guess who's back, back again. Shady's back, tell a friend!
Við erum komin heim. Fríið var mjög gott en ekki veðrið. Við fórum einu sinni á ströndina og versluðum en annars vorum við heima hjá fjölskyldunni (enda tilgangur ferðarinnar að vera hjá þeim). Það er svo sem ekki mikið að segja frá ferðinni, ég held að við höfum aldrei gert jafn lítið og núna, sem var gott.
Kvöldið sem við komum fengum við þvílíkar móttökur. Emma & Lars voru búin að elda glæsilegan mat fyrir okkur 4, svo sátum við og drukkum rauðvín.
Í gær fór ég að vinna og við kíktum á lífið eftir það. Kom heim milli 3 og 4. Ekkert spes eða þannig!
Í dag hins vegar vöknuðum við ansi hress og skelltum okkur til Bjärred á ströndina með Emmu & Lars. Það var það heitt að við fengum lit, sumir fengu rauðan lit. Við stoppuðum í 3 tíma, fórum í sjóinn og alles!



Það er rosa flott þarna. Þessi brú sem þið sjáið er 1/2 km löng og leiðir til baðhúss þ.s. maður getur farið í gufu og flotterí. Nokkuð ánægð með daginn.
Síðan komum við heim og Pálmi undirbjó deitið sitt og ég fór með strákunum í vinnunni að veiða. Mér tókst að draga upp einn fisk og var alsæl með það. Cassandra fékk held ég yndismat hjá honum Pálma og þau sátu úti með kerti og hvítvín. Júlli kom við eftir að hafa verið á Roskilde og það var pretty augljóst að hann hafði verið þar. Það var samt ekki svo vond lykt af honum en bóndabrennan gerði nú ansi mikið fyrir útlitið.
Við vorum svo að spá í að eiga some quality time fyrir okkur í kvöld núna þegar Cassandra er farin að skrúbba Júlla. Ble í bili.
P.s.- Núna erum við komin til að vera góðu lesendur. Komin til að vera. Gott og ferskt blogg með stuttu millibili. Ekki fara langt. Komin til að vera, sagði ég. Góða nótt kids. Polly er nammi.
Posted at 23:56 by Vanessita
Vid erum hérna í beinni frá Portúgali (eins og einhver myndi segja). Ég held ad thetta sé skrítnasta og mest pirrandi lyklabord sem ég hef nokkurn tíma vélritad a. Djofull!
Nýklippt af brasíliskum homma og bara nokkud saet. Vedrid gaeti svosem verid betra en Pálmi (helvítis lyklabord!!!) kvartar ekki. Vid sitjum á Internetkaffihúsi og erum á leid á strond. Hofum mest verid heima og slappad af; engan aesing. 3 mín. eftir af Internettímanum og ég er ekki búin ad gera neitt sem ég aetladi, fer mesti tíminn ad stroka út innsláttarvillur. 2 mín. eftir. Ég er farin.
Posted at 16:28 by Vanessita
Permalink